sunnudagur, maí 30, 2004
Ég hata þegar fólk sem ég þekki kemur að fá sér feitann skyndibita þegar ég er að vinna. Ég er klædd í ljótann einkennisbúning og er með ljótt der, ég þarf að vera með ljótt tígó því að ég er með svo ljótt stutt hár. Ég held að þið náði ljótleikanum, plús það að ég er yfirleitt að leka niður af þreytu, er illa lyktandi og að svitna einsog ég veit ekki hvað. Kynæsandi ? neeee . . . Þannig þegar einhver kemur sem ég þekki reyni ég að láta ekki bera mikið á mér, ekki kalla hátt á næsta. En auðvitað er fólk svo þroskaheft að það heyrir aldrei, og ég þarf að garga af öllum lífsins kröftum. Blaaaaa.
Ég var að frétta áðan að einn strákur sem átti lengi heima í sömu blokk og ég í Háaleitinu hafði verið kærður fyrir kynferðisafbrot. Hann var ábyggilega 3-4 árum eldri en ég, sem sagt svona 20 ára. En hann er þroskaheftur og er bara með þroska á við lítinn krakka, svona 12 ára. Þannig hann var alltaf með einhverjum yngri krökkum, og ég man að þegar ég var yngri var hann alltaf að spyrja eftir mér og bróður mínum, sem gat verið afar pirrandi til lengdar. Hann er líka stuðningsmaður Fram og var alltaf niðrí Framhúsi að horfa á leiki eða sópa eða e-ð. Ég var semsagt að frétta að hann hefði oft afklæðst fyrir framan strákana í einhverjum yngri flokkunum og látið þá snerta hluti eða e-ð. Núna er hann bannaður frá Fram félaginu og má ábyggilega ekki koma nálægt þessum strákum. En ímyndið ykkur ef krakkarnir hafa logið þessu ? Krakka eiga það til að ljúga og þessi drengur gat verið ótrúlega pirrandi og uppáþrengjandi. Hvað ef þau nú lugu þessu bara til að losna við hann ? Þá er framtíð hans bara eyðilögð. En ég veit ekki . .
Ég lykta einsog hamborgari, farin í sjáver.
adios.
laugardagur, maí 29, 2004
Elsku besti golfstraumur.
Plís ekki fara að breyta um stefnu, eða hverfa. Mig langar ekki að frjósa. Ég hef ekki efni á flugfari til Suður Ameríku, og öllum er sama um einhverja íslendinga í Norður Atlantshafi þannig ekki yrði sent á eftir okkur. Ég vill ekki að húsið mitt verði bara einhverjar minjar undir mörgum metrum af ís, allavega ekki á meðan að ég er ennþá lifandi. Ég allavega elska þig Golfstraumur, þú heldur öllu skikkanlegu hérna, ekki of köldu og ekki of heitu. Haltu áfram að bera heitt loft frá miðjarðar-hita-löndunum þarna niðri, ég kann virkilega að meta það.
Kær kveðja, Lilja Hrönn.
föstudagur, maí 28, 2004
Ég byrjaði að vinna hjá Landsvirkjun í gær, var núna reyndar fyrstu dagana i öðrum hóp en ég á að vera, en verkstjórinn þar er svo yndislegur að það er allt í lagi. Síðan hættum við snemma í dag og fengum okkur ís, sem var afar ánægjulegt. Það sem við vorum að gera í dag var að bera svona 500 kg af áburði yfir gras sem hefur ekki dafnað nógu vel. Þar sem að það var mjög mikill vindur þá fauk áburðurinn framan í mann og í augun og allt til heyrandi. Mig svíður mjög mikið núna og ég er ekki frá því að ég sjái pínu óskýrt.
Ég ætla að fara á myndina The day after tomorrow í kvöld. Ég er mjög spennt fyrir henni, hún virkar mjög áhugaverð og spennandi. Ég reyndar gat einu sinni ekki sofið útaf þeirri ógurlegu tilhugsun að golfstraumurinn myndi hverfa. Ég sá nefninlega frétt um þetta einhverntíman ekki all fyrir löngu. Mig langar ekki að búa undir jökli.
Ég er þreytt og er farin að lúra pínu.
p.s.
Kári rakar á sér lappirnar, og er einnig perri.
þriðjudagur, maí 25, 2004
Ég veit ekkert hvað ég á að blogga um. Jájá ég horfði á The O.C. Marissa er blind, Oliver er geðsjúkur, ég vorkenni Summer og Seth er komin með leið á Önnu og Danny er já .. . ekki fyndin og Julie Cooper er óþolandi.
Núna er ég í fossvoginum, því að ég og mamma erum að passa 4 stykki börn því að foreldrar þeirra eru í útlöndum. Ég var að rölta uppí grímsbæ í gær, ætlaði að kaupa mér eitthvað sætt að borða. Þá stoppa einhverjir litlir strákar mig og spyrja mig hvort að ég eigi sígó til að lána þeim og ég segi nei. Allt í lagi með það, en þeir virka nú dálítið ungir til að vera reykja þanni gég spyr þá hvað þeir eru gamlir. Þeir svara því að þeir séu nýorðnir 14, sem sagt í 7unda bekk. SJÖUNDA BEKK ! Jesús fokking faðer kræst. ég fékk áfall, hvert í andskotanum er æskan að fara ? úff. En ekki er það allt, það kemur hlaupandi annars strákur að þeim, með pípu og segir "ég fékk bútinn strákar" eða eitthvað alíka. Ég dó, ég var svo hneyksluð að það hálfa hefði verið nóg. Ég bara stóð og horfði á stráka úr 7unda bekk reykja hass og nokkurnvegin leggja grunninn að lífi sínu. Fokk hvað ég var pirruð, mig langar svo að berja eitthvað vit í hausinn á þeim. Litlu hálfivtar.
Glaaaaa !
mánudagur, maí 24, 2004
Jæja, ég er farin að sakna skólans. Ég hef ekkert að gera fyrr en á fimmtudaginn, og þá tekur bara vinna við.
Ég veit ekkert hvað ég á að gera, ég er búin að koma mér svo vel fyrir í kvennó og ekki líkar mér vel við breytingar, en mig langar í einhverskonar hönnunarnám. Samt finnst mér svo gaman í félagsfræði, og mig langar svo að verða svona félagsráðgjafi fyrir unglinga. Ég veit ekki, ég veit ekki neitt, vá hvað ég er týnd. Heyrir einhver í mér ?!
Fokkfokkfokk.
föstudagur, maí 21, 2004
Hver er stelpan, hveeeer eeeer stelpan ?! Hver náði sögu 103 ? oooog hver náði sögu 203 ?!?!
LILJA !!! JAAAAAAÁ !!! Ég reyndar náði ekki stæ 123 en ég var það stutt frá því að ná að ég fer og tek endurtökuprófið 3. júní kl 9 og mun ná ! Kemur ekki neitt annað til greina. Vá hvað þetta er mikill léttir, ég náði meðaleinkuninni, bara þetta eina próf eftir þá næ ég öllu árinu. Vei vei !! Núna get ég virkilega sofið rólega.
Farin að sækja einkunirnar, þú veist blaðið með einkuninni sem segir að ég féll ekki í sögu.
þriðjudagur, maí 18, 2004
Ég er búin í prófum. Mér gékk misvel í prófunum en mér gékk einstaklega vel í enskunni og Laxdælu, ég þakka fyrir það að Laxdæla gilti 50 % af íslenskunni. Vúúúhúúúhúúúú ég er loksins búin í prófum, þvílíkur léttir !
Mig langaði að bæta við hlekkjum á tvo afar skemmtilega bloggara. Það er annars vegar Bossabarnið hann
Kári, Hann er hress og skemmtulegur fyr ég kann að meta hann afar vel og ekki er bloggið hans síðra. Hins vegar hann Oddur The O.C. fan með meiru og tónlistarmaður, bassaleikari í
Lokbrá. Ég þekki ekki neinn sem hefur jafn mikið gaman og ég af The O.C. einsog hann Oddur. Sem er kúl. Síðan bætti ég líka þremur öðrum hlekkjum við sem eru hjá skólafélögum mínum, Erki litli frakkinn í bekknum, Tinna sæta og síðan eru nokkrar bekkjasystur mínar saman með síðu. ég bara alltaf steinleymdi að bæta þessum hlekkjum við, en núna geta bekkjarfélagar mínir sofið rólega.
Farin í klippingu.
mánudagur, maí 17, 2004
Ég setti link á heimasíðu um The O.C. hérna til vinstri, í einn af þessum fagur grænu kössum. Ég ætlaði bara að vara O.C. aðdáendur um að þarna
gæti leynst vafasamt efni, semsagt efni úr þáttum sem hafa ekki enn verið sýndir á Íslandi. Ég hef bara ekki kannað það þar sem mig langar ekki að eyðileggja spennuna. En ekki kenna mér um ef þið lesið eitthvað sem ykkur langar ekki að vita.
En sjæsa, þátturinn í kvöld, mig líkar ekki við Oliver Trask, við erum að tala um virkilega vondan dreng hér á ferð. Síðan verður Luke alltaf fyndnari og fyndnari með hverjum þættinum, orðin svona fíflið og er allur að koma til hvað varðar að vera virkilegur auli og hálfviti. Mér finnst Seth Cohen sætur, ég ætla að eignast helling af börnum með honum. Helling !!!
Eftir partíið hjá Guðjóni varð ég að dánlóda "Looks like she's feeding flies again" með
Lödu sport, til að vita hvað allir voru að tala um. Ég verð að segja að þetta er ekkert smá gott lag, mjög sumarlegt og ég er að fíla það þessa dagana. Það veitti mér mikla gleði í dag.
"Dm" the saddest chord in the history of
music, you must cry yourself to sleep every
night...
What Guitar Chord Are You? brought to you by Quizilla
Hvað getur maður sagt ? Próf á netinu þekkja mann best og segja alltaf sannleikann.
Adios.
sunnudagur, maí 16, 2004
Halló halló.
Júróvisjon var í gær, ég held að það hafi ekki farið framhjá neinum. Ég byrjaði á því að fara í mat til frændfólks míns sem var mjög ljúffengt. Síðan hélt ég í afmæli/júróvisjon teiti til
Guðjóns. Ég var ábyggilega sú eina þarna sem var ekki í hljómsveit eða ræðuliði. Djöfull er ég ekki kúl. En já, þetta var afar ánægjulegt kynntist mörgu skemmtilegu fólki. En ég verð að segja að
bossabarnið stóð uppúr fyrir einstakan hressleika. Mjög skemmtilegur drengur þar á ferð. Vúhú ! Sindri Eldon dansaði um berfættur í magabol, ég vildi að ég væri jafn kúl og hann. já. Aðrir fóru út í fótbolta,
sumir voru hangandi í tölvunni og aðrir sungu og spjölluðu. Nei ég lýg, þetta var orgía. Ég sver.
Allavega, þegar orgíunni lauk, hélt ég heim á leið yfir í fellin. Ég labbaði eftir göngustíg sem fer beina leið frá seljahverfinu yfir í fellin og hann liggur á bakvið Big Ben. Þá var einhver lítill hálfvita strákur, ekki eldri en ég, að rústa bíl á bakvið Big Ben. Þá hleypur einhver maður, sem er frekar eldri maður og væskilslegur, uppað bílnum og spyr hann hvurn andskotann hann sé að gera. Strákurinn svarar því með því að kalla hann hálfvita og byrjar að lemja eitthvað í hann. Maðurinn færir sig alltaf fjær honum en strákurinn lemur bara í hann og reyndi að gera sig voða skerí og dimmraddaðann. Síðan kastar hann manninum í vegg og síðan í vegarkant á útkeyrslunni af planinu. Þegar hann sá að ég var að tala við lögregluna byrjar hann að labba í áttina að mér, en ég var komin það nálægt Big Ben að ég faldi mig á bakvið dyravörðinn þar. Síðan kom lögreglan og var voða treg við að fara af stað að ná stráknum sem stóð og barði í eitthvað strætóskýli. Síðan dreif ég mig heim í hlýja rúmið mitt. Heimski heimski strákur sem þetta var.
Farin að læra. Tvö próf eftir.
fimmtudagur, maí 13, 2004
Það er ekkert smá óþægilegt að vakna og geta ekki opnað augun. ég hélt að sá dagur kæmi aldrei að ég myndi fá sýkingu í augun, en jú hann kom, og er vægast sagt ógeðslegur. Blaaaah oj.
Íslensku próf á morgun auk þess er prófið líka úr Laxdælu, sem er reyndar ótrúlega skemmtileg og fyndin saga þannig það er allt í lagi. Vona bara að ég standi mig í málfræðinni. En allavega er ég að spá í að fara læra fyrir þetta blessaða próf. Þegar það er yfirstaðið eru aðeins tvö eftir. Jeah. Síðan er júróvisjon á laugardaginn og ég er svo kúl að ég er búin að fá boð í teiti. Nei djók ég er ekkert kúl en ég er samt búin að fá boð frá
Dóru yndislegu og það kann ég að meta. Hver veit nema maður skelli sér, ég á samt ábyggilega eftir vera algjör kúkur þarna að sökum þess að ég er mjög feimin í kringum helling af fólki sem ég þekki ekki, þekki engan nema hana og
Guðjón.En maður reynir að gera það besta og röfla ekki allan tímann. Jájájá, ég ætla ekki að röfla.
Farin að læra. Læra. Læri lær lær.
þriðjudagur, maí 11, 2004
Sá þetta sniðuga test á blogginu hans
Odds (vinur vina og þannig) en allavega, ég er greinilega nott ðett inosent.
I am 29% evil.
I try to stay away from evil deeds but succumb to temptation every once in a while. I'm not quite on my way to hell but I certainly have some explaining to do.
Are you evil? find out at Hilowitz.com
Ég er greinilega hetja
sumra, það kann ég að meta. Úje !
mánudagur, maí 10, 2004
Tekið af
mbl.is :
"Fram kemur á Evróvisionsíðunni, að Birgitta Haukdal hafi sent Jónsa SMS-skeyti í gær og óskað honum góðs gengis."
Ef þetta þykir fréttnæmt þá langar mig að æla.
föstudagur, maí 07, 2004
Góða Kvöldið. Þetta er nýja Liljan sem bloggar, þið megið gleyma hinni, hún er horfin. Fyrir fullt og allt vonandi. Gamla Liljan nöldraði endalaust, var mjög neikvæð og dómhörð á sjálfa sig, þó ég tali nú ekki um viðkvæm og með lítið hjarta.
Ég talaði við einn mann í dag, sem sagði svo marga hluti sem bara kveiktu á einhverri peru í hausnum á mér. Ég tek eftir öllu því neikvæða og leiðinlega. Ég hef áhyggjur af því að ég hef áhyggjur af skólanum. Ég geri ráð fyrir að tilfinningar mínar gefi rétta mynd af hvernig hlutirnir eru í raun og veru, t.d. "ég er með samviskubit, ég hlýt að vera slæm manneskja". Ég ásaka mig einnig um marga hluti og geri mig ábyrga fyrir hlut sem er ekkert endilega algerlega á mínu valdi. Svona til að þið fattið hvað ég á við þá er einsog t.d. ef maður lemur eiginkonu sína, og hún segir við sjálfa sig "ef ég væri betri eiginkona mundi hann ekki lemja mig".
Núna þegar sumarið er að ganga í garð ætla ég virkilega að reyna breyta þessu, ég efast ekki að mér muni líða betur. Það er gaman þegar maður áttar sig á einhverjum svona hlut, og vill virkilega gera eitthvað í því að breyta því. Þetta mun ekki gerast yfir nóttu ég veit, ég hef alltaf verið mjög neikvæð manneskja að eðlisfari, en betra seint en aldrei segi ég nú bara.
Mig langar að þakka
Guðjóni fyrir fallegt boð í teiti heima hjá honum. Þetta var kannski ekkert það merkilegt en mér þótti mjög vænt um að vera boðið. Núna myndi gamla Lilja fara röfla um hvað það er leiðinlegt að missa af teiti með helling af skemmtilegu fólki og góðu, sem það vissulega er. En ég ætla bara njóta þess að vera hjá Sólrúnu minni og læra enn meira fyrir sögu 203.
Farin að læra, eða allavega reyna það.
og já þarna síðan er eitthvað í fokki núna, vegna þess
Dóra er eitthvað að betrumbæta hana, angelfire.com er eitthvað í fokki og þess vegna vantar myndina og commentin eru einnig í fokki. Ég vonast til þess að allt þeta verði komið í lag bráðlega, þannig endilega geymið kommentin á öruggum stað þangað til að kerfið verður komið upp aftur. Takk fyrir og góða nótt.
Ég er með athygli á við 1 árs gamlan krakka. Það ættu ekki að vera net tengdar tölvur á bókasöfnum. Virkilega ekki. Ég er farin að læra.
núna . . .
HAHA !! grín. Nei okei, í alvöru. Ég er farin að lesa sögu 203.
Núna !
fimmtudagur, maí 06, 2004
Ég er búin að sitja við tölvuna í svona ca. klukkutíma og með blogger gluggann opin og reyna að skrifa eitthvað. Mig bara dettur ekkert í hug, nema hor. Hor hor hor hor horohorhor, hor og hor.
Hor. . . . hooooor.
Ég er sem sagt mjög kvefuð, er búin að eyða síðustu dögum í að kvíða fyrir próf og læra, á meðan að ég píni í mig panodil hot. Sem er ógeðslegur sori. Ég fór í stærðfræðipróf í dag sem gékk ekki nógu vel, að sökum þess að ég var hálf meðvitundarlaus í gær og gat varla haldið mér vakandi. Næst er sögupróf og það er á mánudaginn, ég ætla að vera mjög dugleg að læra fyrir það og ná sögunni. Það væri nú gaman.
Ég er farin að snýta mér . . .
mánudagur, maí 03, 2004
Ég er svo sannarlega komin með kvef og eytlabólgu. Svo sannarlega er það ógeðslegt og kvalarfult.
Svo sannarlega var helgin ánægjuleg og svo sannarlega ætla ég að hætta að nota "svo sannarlega" í upphafi hverrar setningu. En semsagt á laugardagskvöldinu bauð ég
Lenu sætu í mat. Ég eldaði kjúklinga fajitas, alveg sjálf. Já ég er afar stolt, þó að eina matseldin fól í sér að steikja kjúklingin. Síðan horfðum við á Forrest Gump, sem var mjög gaman. Ég get einfaldlega ekki horft á Forrest Gump með hverjum sem er, ég græt einsog lítið beibí. Síðan á sunnudeginum kíkti ég í kringluna og kolaportið með Lenu, við gerðum mjög góð kaup í bás með fötum úr spútnik. Ég keypti mér sætt grænt prjónað sjal og skyrtu á 750 kr. Ekki amarlegt það. Síðan keypti ég mér nokkur reykelsi og ilmkerti og svo síðast en ekki síst kínakjól á 300 kr. Núna er þetta reyndar orðin kínabolur, því að ég stytti hann, ég er ekki mikið fyrir að ganga í kjólum þó svo að ég sé pils manneskja.
En mig langar bara að þekka Lenu fyrir ótrúlega ánægjulega helgi og bara einfaldlega fyrir að vera vinkona mín. Ég elska þig Lena :*
sunnudagur, maí 02, 2004
Vá hvað ég get endalaust pirrað mig á öllu og öllum. Bara fólk sem ég þekki ekki neitt, skrifar eitthvað á bloggið þeirra sem mér finnst svo fáránlegt eða leiðinlegt eða e-ð annað sem ég kann ekki að meta og ég v erð bara pirruð og reið útí alla í kringum mig. Einsog hún
Dóra talar um, svona stelpur sem blogga án þess að nota punkta eða kommur er alveg drullu óþolandi ! Síðan skrifa þær um hvað foreldrar þeirra eru leiðinlegir að segja þeim að koma heim fyrir 12, við erum að tala um stelpur í svona 10unda bekk, og þær eru svo faaaalippaðar að þær segjast hata foreldra sína. Okei, hvað er að ? Já, Líf þeirra er ömurlegt vegna þess þær þurftu að koma heim kl. 12. Vegna þess að foreldrum þeirra þykir vænt um þær og vilja ekki vera áhyggjur af þeim. Sem foreldranir ættu reyndar að hafa vegna þess að dætur þeirra eru ábyggilega bara druslur sem vilja bara hanga úti fram eftir nóttu, drekkandi, reykjandi og fara í ríðukepnnir. Þetta á kannski alls ekki við um allar stelpur en mjög margar og þau blogg sem ég hef lesið, þið vitið, þessi blogg án punkta og kommna. Vá hvað þessar stelpur kunna að meta það sem þær eiga, og djöfull ótrúlega er líf þeirra ömurlegt. Ég finn svo til með þeim.
Síðan skil ég virkilega ekki stelpur sem geta sofið hjá öllu sem hreyfist. Það eru virkilega stelpur farna að skíra í sömu fokking messu og þær fermast í. Hvað er heimurinn að verða ? Stelpur sem eru ekki komnar í menntaskóla, sem drekka einsog svín hverja helgi og hata forledra sína og eru hoppandi á hvaða stráka sem er. Ég bara botna ekki í þessu, þetta er svo ógeðslegt. Síðan eru þær sármóðgaðar ef þær eru kallaðar hórur, okei ég skal ekki kalla ykkur hórur en þið eruð druslur.
Nei ég er ekki pirruð.
laugardagur, maí 01, 2004
Ég er svo hás og veik eitthvað, röddin í mér hljómar einsog Janis Joplin. Prófin nálgast óðfluga og því er ekki sniðugt að fara verða veikur. Hreint út sagt ekki sniðugt.
Ég er núna heima og get ekkert farið út, ekki bara vegna þess að ég er veik heldur einnig það að það er svona vor tiltektar dagur í blokkinni minni. Vegna þess að flestir íbúarnir hérna þola mig ekki og ég ekki þá mæti ég auðvitað ekki til að kanntskera lóðina hjá alkahólistanum sem hefur gaman að því að garga hástöfum á börnin sín á fyrstu hæðinni. Þess vegna get ég ekki farið út, fólk á eftir að koma með svona hnyttin skot á mig um hvað ég er löt og þar fram eftir götunum. Ég er nú einu sinni unglingur, það getur ekki mögulega verið neitt gott við það !
Farin að msn-ast . .